Um ENIC/NARIC
ENIC/NARIC skrifstofan sinnir akademísku mati á erlendu námi fyrir stofnanir, háskóla, ráðuneyti, einstaklinga og fyrirtæki.
Mat á starfsréttindum fer fram hjá mismunandi stofnunum, sjá frekari upplýsingar hér.
ENIC/NARIC Ísland tekur ekki ákvarðanir um mat á námi, heldur veitir leiðbeiningar og ráðgjöf þar um.
ENIC/NARIC Ísland starfar samkvæmt ákvæðum greinar IX.2. í Lissabonsamningnum um viðurkenningu á menntun og hæfi að því er varðar æðra skólastig á Evrópusvæðinu. (Lisbon, 11.IV.1997)
ENIC stendur fyrir European Network of Information Centers Evrópuráðsins og UNESCO. NARIC stendur fyrir National Academic Recognition Information Centers Evrópusambandsins.
ENIC/NARIC skrifstofur eru starfræktar í þeim löndum sem eiga aðild að samningnum og eiga þær með sér náið samstarf.
Verkefni ENIC/NARIC upplýsingaskrifstofunnar
Verkefni skrifstofunnar eru nánar tiltekið þessi:
-
- Veita umsögn um mat á námi og prófgráðum í samræmi við þær matsaðferðir sem þróaðar hafa verið af NARIC og ENIC samstarfsnetunum.
- Sjá einstaklingum, háskólum, vinnuveitendum, fagfélögum, yfirvöldum og öðrum hagsmunaaðilum fyrir áreiðanlegum og nákvæmum upplýsingum um prófgráður, menntakerfi og matsferli.
- Vera meginupplýsingamiðstöð Íslands um prófgráður og mat á námi.
- Starfa með öðrum upplýsingamiðstöðvum um tengd mál, háskólum, samtökum þeirra og öðrum hagsmunaaðilum á Íslandi.
- Starfa með þeim yfirvöldum sem fara með mat á starfsréttindum í löggiltum starfsgreinum.
- Stuðla að þróun æðri menntunar á Íslandi. Stuðla að þróun viðmiða um æðri menntun og prófgráður (qualification framework) fyrir Ísland.
- Sjá erlendum aðilum, sérstaklega öðrum upplýsingastofum í ENIC og NARIC samstarfsnetinu, fyrir áreiðanlegum og nákvæmum upplýsingum um íslenska menntakerfið.
- Vinna með ENIC og NARIC samstarfsnetunum að þróun viðmiða fyrir Evrópusvæði æðri menntunar (European Higher Education Area).
- Taka þátt í útgáfu, könnunum, samanburðarathugunum og öðrum rannsóknum á mati náms á vegum framkvæmdanefndar ESB og annarra samtaka.
- Þróa samstarf um akademískt mat náms við yfirvöld í löndum utan Evrópu.
- Kynna starfsemi ENIC/NARIC samstarfsnetsins í löndum utan Evrópu.
- Geta þátttöku íslensku ENIC/NARIC skrifstofunnar í ENIC og NARIC samstarfsnetunum í öllu útgefnu efni og í samskiptum vegna upplýsingastarfsins.
Samstarfsaðilar

