Íslenska menntakerfið
Íslenska menntakerfið skiptist í fjögur megin skólastig: leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla. Menntakerfið byggir á jafnræði, aðgengi að námi, inngildingu og símenntun.
Leikskólar eru fyrir börn undir grunnskólaaldri og eru almennt reknir af sveitarfélögum. Grunnskólanám er skyldunám og nær yfir tíu ár, frá sex til sextán ára aldurs. Nám í opinberum grunnskólum er nemendum að kostnaðarlausu.
Framhaldsskólanám tekur við að loknum grunnskóla og er almennt ætlað nemendum frá sextán ára aldri. Boðið er upp á bóknám, starfsnám og námsleiðir sem sameina bóklegt og verklegt nám. Bóknámsbrautir leiða yfirleitt til stúdentsprófs, sem veitir aðgang að háskólanámi. Starfsnám undirbýr nemendur fyrir tiltekin störf og getur jafnframt veitt möguleika á áframhaldandi námi, eftir því hvaða námsleið er valin.
Háskólanám er í boði við viðurkennda háskóla. Ísland er þátttakandi í Evrópska háskólasvæðinu og fylgir þriggja þrepa uppbyggingu háskólanáms: grunnnámi, meistaranámi og doktorsnámi. ECTS-einingakerfið er notað við flest nám.
Ábyrgð á menntakerfinu er skipt milli ríkis, sveitarfélaga og menntastofnana. Lög, gæðatrygging og íslenski hæfniramminn styðja við gagnsæi og samanburðarhæfi náms.