Nánar - Almenn umsókn
Hægt er að sækja um mat á erlendu akademísku námi til ENIC/NARIC skrifstofunnar (athugið að matsskrifstofan sinnir ekki mati á innlendu námi). Matið er leiðbeinandi og staðsetur námið innan íslenska menntakerfisins. Ekki er lagt mat á faglegt innihald náms og almenna matið gefur ekki rétt til þess að starfa í löggildum greinum hér á landi. Sækja þarf sérstaklega um mat á námi til leyfisbréfa í löggildum greinum. Hægt er að finna frekari upplýsingar um hvaða greinar það eru og um umsóknarferlið hér.
Umsókn og fylgigögn þarf alltaf að senda rafrænt í gegnum umsóknargáttina.
Hægt er að skrá sig inn í umsóknargáttina með rafrænum skilríkjum eða með því að fara í „Nýskrá“ og búa til aðgang með notendanafni og aðgangsorði.
Hægt er að velja um staðfest mat eða óstaðfest mat inn í umsóknarforminu:
Staðfest mat:
Ef hægt er að staðfesta gögnin með rafrænum hætti, þ.e. gögnin eru með rafrænni undirskrift eða hægt er að staðfesta þau í gegnum gagnagrunn á vegum viðkomandi skóla eða menntamálayfirvalda, þá getur þú sent fylgigögnin rafrænt og fengið formlegt bréf með undirskrift þar sem fram kemur mat á námi þínu.
Ef ekki er hægt að staðfesta gögnin þín með rafrænum hætti getur þú fengið formlegt mat á fyrri menntun þinni með því að fylla út umsóknina á umsóknargáttinni og koma með staðfest afrit/frumrit af gögnunum til okkar.
ATH! bóka þarf tíma til þess að koma með frumgögn á skrifstofuna hér – Bóka tíma til að koma með frumgögn
Ef valið hefur verið að koma með frumgögn á skrifstofuna en þau hafa ekki borist innan mánaðar er umsóknin afgreidd sem óstaðfest mat á námi.
Vinsamlegast athugaðu að við bjóðum ekki upp á þá þjónustu að hafa samband við skóla til að fá staðfestingu á menntun en umsækjendur geta sjálfir beðið skóla um að senda staðfestingu, frá formlegu netfangi skólans, beint á netfangið enicnaric@hi.is.
Óstaðfest mat byggt á skönnuðum gögnum:
Ef þú óskar eftir rafrænu svari þar sem tekið er fram að matið er ekki unnið út frá staðfestum gögnum, getur þú sent okkur gögn þín á .pdf formi þótt ekki sé hægt að staðfesta þau rafrænt. Þá gætir þú þurft að leggja fram prófskírteinin þín ásamt rafræna mati okkar þegar þú sækir um starf eða áframhaldandi nám.
Hvað þarf að fylgja umsókn?
Afrit af eftirfarandi gögnum (á .pdf formi):
- Útskriftarskírteini og námsferilsyfirlit á frummáli
- Skírteinisviðauki (Diploma Supplement) ef mögulegt
- Ensk eða íslensk þýðing á útskriftarskírteini og námsferilsyfirliti ef námsgögn eru ekki rituð með latnesku stafrófi (t.d. Arabíska, persneska, úkraínska ofl. Tungumál)
- Staðfesting (útskriftarskírteini / námsferilsyfirlit) á fyrri menntun sem veitti aðgang í það nám sem á að meta
- Staðfesting á nafnabreytingu ef við á, t.d. giftingarvottorð
Öll samskipti fara fram í gegnum umsóknargáttina og alltaf er hægt að nálgast niðurstöður matsins þar.
Haft er samband við umsækjendur ef einhver gögn eða upplýsingar vantar.
Afgreiðslutími:
Vinnsla umsókna getur tekið allt að þrjá mánuði frá því að öll nauðsynleg gögn hafa borist.