Mat á námi til starfsréttinda

Hvernig sæki ég um mat á námi til starfsréttinda í iðngrein?

ENIC/NARIC tekur við umsóknum um mat á námi til starfsréttinda í iðngreinum.

Ef þú hefur menntun erlendis frá í iðngrein sem telst lögbundin hér á landi, getur þú óskað eftir að fá hana viðurkennda til að sækja um starfsleyfi.

Upplýsingar um hvaða aðrar greinar en iðngreinar teljast lögbundnar og hvaða stjórnvald fer með viðurkenningu og/eða útgáfu leyfisbréfa er að finna hér.

Upplýsingar um mat á námi til meistarabréfs í iðngreinum er að finna hér.

    1. Þú sendir inn rafræna umsókn um mat til ENIC/NARIC skrifstofunnar ásamt fylgigögnum.
    2. Gjaldið fyrir umsóknina er 10.000 kr. Umsóknargjaldið fæst ekki endurgreitt.
    3. ENIC/NARIC skrifstofan sendir umsóknirnar til fagaðila til umsagnar.
    4. Eftir að umsögn fagaðila berst ENIC/NARIC skrifstofunni svarar hún umsækjanda og sendir afrit til Sýslumanns á Austurlandi ef veita á leyfisbréf.
    5. Sýslumaður gefur út leyfisbréf sem kostar 3.800 kr.
    6. Umsóknarferlið í heild sinni getur tekið allt að þremur mánuðum eftir að öllum fylgigögnum er skilað.

Frekari upplýsingar um umsóknarferlið, nauðsynleg fylgigögn og skilyrði fyrir leyfisbréfi má finna hér.

🇬🇧
🇮🇸