Nánar - Stofnanir
Í umsóknagáttinni geta stofnanir, háskólar og fyrirtæki sent inn umsóknir um mat á fyrra námi fyrir starfsfólk sitt eða umsækjendur um nám. Í umsókninni þarf að gefa upp upplýsingar um starfsmann/umsækjanda og taka þarf fram hvað þarf að meta t.d. þrep náms, einingarfjölda, inntökuskilyrði o.s.frv.
Hvað þarf að fylgja umsókn?
Afrit af eftirfarandi gögnum (á .pdf formi):
- Útskriftarskírteini og námsferilsyfirlit á frummáli
- Skírteinisviðauki (Diploma Supplement) ef mögulegt
- Ensk eða íslensk þýðing á útskriftarskírteini og námsferilsyfirliti ef námsgögn eru ekki rituð með latnesku stafrófi (t.d. Arabíska, persneska, úkraínska ofl. Tungumál)
- Staðfesting (útskriftarskírteini / námsferilsyfirlit) á fyrri menntun sem veitti aðgang í það nám sem á að meta
- Staðfesting á nafnabreytingu ef við á, t.d. giftingarvottorð
Afgreiðslutími:
Vinnsla umsókna getur tekið allt að mánuð frá því að öll nauðsynleg gögn hafa borist.