Mat á námi
ENIC/NARIC skrifstofan veitir mat á erlendum prófgráðum, prófskírteinum og námsvottorðum, auk upplýsinga um alþjóðlega viðurkenningu náms. Matið er stutt greinargerð sem lýsir því hvaða námsstigi erlenda menntunin samsvarar í íslenska menntakerfinu og, eftir því sem unnt er, á hvaða námssviði hún er.
Ef þú hyggst starfa í lögverndaðri starfsgrein þarft þú að sækja um starfsleyfi hjá því stjórnvaldi sem veitir starfsréttindi í viðkomandi grein.
Hvernig sæki ég um mat á námi?
- Þú sendir inn rafræna umsókn ásamt nauðsynlegum fylgigögnum. Þú getur einnig athugað hvort nám þitt sé á lista yfir sjálfvirka viðurkenningu.
- Við förum yfir umsóknina og óskum eftir frekari gögnum ef þörf krefur.
- Við metum námið. Afgreiðsla getur tekið allt að 3 mánuði frá því að öll nauðsynleg gögn hafa borist.
- Þú færð niðurstöðu matsins með tölvupósti í gegnum umsóknagáttina.
Hvernig fer matið fram?
Við mat á námi er stuðst við opinberar upplýsingar frá þar til bærum yfirvöldum í viðkomandi landi, gögn frá menntastofnunum og upplýsingar og leiðbeiningar annarra ENIC/NARIC skrifstofa. Matið byggist einnig á alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að, einkum Lissabon-samningnum.
Matið felst í því að greina stöðu viðkomandi prófgráðu í menntakerfi þess lands þar sem hún var veitt og ákvarða hvaða prófgráðu eða námsstigi hún er sambærileg við í íslenska menntakerfinu.
Við matið er meðal annars litið til eftirfarandi atriða:
- Er menntastofnunin sem veitti prófgráðuna viðurkennd af menntamálayfirvöldum í heimalandi sínu?
- Hvaða inntökuskilyrði gilda um námið?
- Hver er skilgreind lengd námsins?
- Veitir prófgráðan aðgang að frekara námi á háskólastigi?
- Þegar um meistara- eða doktorsnám er að ræða: Hversu stóran hluta námsins mynda rannsóknir og lokaritgerð?
Ef inntökuskilyrði, námslengd og aðgangur að frekara námi eru sambærileg við það sem gildir um tiltekna íslenska prófgráðu mælir ENIC/NARIC skrifstofan með því að erlenda prófgráðan sé metin sambærileg við hana.
Ef afla þarf frekari upplýsinga frá menntastofnunum eða yfirvöldum erlendis getur afgreiðsla tekið lengri tíma.
Upplýsingar og skýringar á niðurstöðu
ENIC/NARIC skrifstofan notar eingöngu opinber gögn, gögn frá viðkomandi menntastofnunum og upplýsingar frá öðrum ENIC/NARIC skrifstofum við mat sitt og ráðgjöf.
Þú getur óskað eftir skýringum á niðurstöðu matsins og komið á framfæri athugasemdum. Þú getur einnig óskað eftir afriti af þeim gögnum sem matið byggist á.
Hvert er gildi matsins?
Mat ENIC/NARIC skrifstofunnar er leiðbeinandi og felur ekki í sér bindandi ákvörðun um viðurkenningu náms. Álit skrifstofunnar er því ekki kæranlegt til æðra stjórnvalds.
Ef háskóli, deild eða önnur stofnun synjar umsókn um viðurkenningu náms, meðal annars á grundvelli ráðgjafar ENIC/NARIC skrifstofunnar, gilda reglur viðkomandi stofnunar um kæruleiðir.
Hvað kostar þjónustan?
Almennt mat á námi hjá ENIC/NARIC skrifstofunni er veitt án endurgjalds.