Breytt verklag við mat á breskum eins árs meistaraprófum

28.september 2026

 

ENIC/NARIC-skrifstofan hefur endurskoðað verklag við mat á breskum eins árs meistaraprófum. Markmið breytingarinnar er að tryggja að mat á erlendri menntun endurspegli sem best raunverulega hæfni og námsárangur útskrifaðra nemenda og sé í samræmi við þróun innan íslenska og evrópska háskólasvæðisins.

Fram til þessa hafa breskar eins árs meistaragráður almennt verið metnar sem sambærilegar 75 ECTS eininga prófum á meistarastigi. Sú framkvæmd byggðist meðal annars á mati á vinnuframlagi að baki breskum einingum í samanburði við evrópska ECTS-einingakerfið.

Í kjölfar endurskoðunar hefur verið ákveðið að breskar eins árs meistaragráður sem veita aðgang að doktorsnámi og fela í sér rannsóknar- eða lokaverkefni sem samsvarar að lágmarki 60 UK credits (um 30 ECTS einingum) verði framvegis metnar sem sambærilegar 90 ECTS eininga meistaraprófum á þrepi 6.2 í íslenska hæfnirammanum um menntun.

Breytingin byggir á því sjónarmiði að við mat á háskólamenntun beri ekki eingöngu að líta til námstíma eða útreiknings vinnustunda heldur einnig að þeirri hæfni sem námið veitir og þeirri stöðu sem prófgráðan hefur innan menntakerfis upprunalandsins. Breskir háskólar skilgreina þessar prófgráður almennt sem fullgild meistarapróf sem undirbúa nemendur fyrir frekara rannsóknanám og veita aðgang að doktorsnámi.

Sambærileg þróun hefur jafnframt átt sér stað hér á landi þar sem íslenskir háskólar bjóða nú upp á eins árs meistarapróf sem metin eru til 90 ECTS eininga og staðsett á þrepi 6.2 í íslenska hæfnirammanum, að því gefnu að þau innihaldi umfangsmikið lokaverkefni.

Með þessari breytingu leitast ENIC/NARIC við að tryggja samræmi, jafnræði og gagnsæi í mati á háskólamenntun og að matið endurspegli betur raunveruleg námsmarkmið, hæfni og akademísk réttindi sem prófgráður veita.

Breytt verklag tekur þegar gildi og verður framvegis beitt við mat á breskum meistaraprófum sem uppfylla framangreind skilyrði.

Hægt er að sækja um endurmat í gegnum umsóknargáttina

 

 

🇬🇧
🇮🇸